Viðtal við formann félagsins í vikublaðinu um stöðuna að loknu þingi

12. október, 2022 - 14:56Gunnar Níelsson - gunnar@vikubladid.is

Jóhann Rúnar Sigurðsson formaður Félags Málmiðnaðarmanna Akureyri
Jóhann Rúnar Sigurðsson formaður Félags Málmiðnaðarmanna Akureyri
 

Vefurinn leitaði eftir áliti Jóhanns Rúnars Sigurðssonar  formanns  FMA á stöðu þeirri sem upp er komin  í kjölfar frestunar á þingi Alþýðusambands Íslands (ASÍ)

Jóhann sem er staddur utan landsteina segir  stöðuna verulega flókna.

Staðan er verulega flókin eftir það upphlaup sem varð í gær. Mér vitanlega hefur enginn innan hreyfingarinnar hótað þremenningunum. Orð geta magnast upp í hita leiksins og þau eiga vel að þekkja það þremenningarnir. Þetta er sorglegt að þau dragi sig út í stað þess að halda áfram og fara í sínar framboðsræður og láta reyna á niðurstöðuna. Staðan núna er að þannig séð mjög flókin.

 Lýðræði snýst um að takst á um málefni og í kosningum en snúa síðan bökum saman fyrir sýna umbjóðendur. Ég hvet þau til að íhuga stöðu sína en frestun þingsins veitir tækifæri til sátta. Ég bendi þó á að við eigum mikið af frambærilegu fólki sem unnið hefur fyrir sína félagsmenn fyrir utan fjölmiðla.

Að fresta þingi er ekki endilega í mínum huga réttlætanlegt gagnvart okkar umbjóðendum en hugsanlega sú lausn sem þarf til og sú ákvörðun því skiljanleg og sýnir að sáttatónn er hjá þessum armi. Hvernig sem framhaldið verður, er skynsamlegt að aðilar haldi aftur af sér í yfirlýsingum og áværingum hvor til annars. Við verðum að setjast niður og sjá hvernig aðilar geti komið til baka,heiftin má ekki snúast um eða út í einstsklinga og verður henni að ljúka og allir aðilar að hafa hagsmuni félagsmanna sína að leiðarljósi.

Jafnvel þó þau komi ekki til baka á næstunni, þá tel ég að skynsemin hljóti að verða ofaná og með hagsmuni launafólks í huga að aðilar vinni saman. Annað er á kostnað launafólks og á ábyrgð þeirra sem fyrir þau starfa. Öll þau réttindi sem að launafólk hefur í dag samanber varðandi orlofsrétt,veikindarétt,lífeyrisréttindi sem og önnur launaréttindi,styttri vinnuviku sem og annan stuðning sem aðildarfélög innan ASÍ hafi unnið að á sameiginlegum vettfangi. ASÍ er vettvangur félaganna til að gæta heildarhagsmuna launþeganna og því mikilvægur vettvangur þeirra til að það haldi áfram.

Vangaveltur um hvernig hagsmunum minna félagsmanna er best varið er líklegast svarað með ofangreindu svari, hinsvegar er það umræða sem félagsmenn verða að taka í heild sinni ef menn ætla annað. Iðnaðarsamfélagið hefur ansi oft þurft að lækka sýnar kröfur í kjarasamningum til hækkunar á lægstu launum á heildarborðinu. Um það snýst hinsvegar samvinnan að verja lægstu launin og það höfum við sýnt hingað til. Hagsmunir launafólks er ofar einstaklingum og félögum og ASÍ er heildarhreyfing þess og þess þurfum við að gæta. ASÍ getur alveg eins og önnur samtök tekið breytingum í höndum launþegahreyfingarinnar.

Tíminn verður að leiða það í ljós hvort eða hvernig, en þó þannig að samtökin séu þungamiðjuafl hreyfingarinnar. Þar sem ég er ekki á þinginu en kjörnir fulltrúar okkar eru á því þá hvet ég til hófsemi á ljósvakamiðlum, en umræðum þess i stað á grundvelli hagsmuna launafólks að leiðarljósi. Fljótfærni er mannlegt eðli sem við eigum öll til.     Góðar stundir.