Orlofsuppbót 2023 er 56.000.- kr. Orlofsuppbótin 2024 er 58.000 kr. Orlofsuppbótin 2025 er 60.000.-kr. Orlofsuppbótin 2026 er 62.000.-kr. Orlofsuppbótin 2027 er 64.000.-kr.
Orlofsuppbót greiðist þann 1.júní miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu (01.05.-30.04), öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum m.v. 30. apríl eða eru í starfi 1.maí.
Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla orlofsuppbót.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.