Úrslit í golfmóti Samiðnar

Árlegt golfmót Samiðnar fór fram á Öndverðarnesvelli föstudaginn 5. júní sl. Leikin var punktakeppni með og án forgjafar og ræst út kl. 10:00.

Eftir hringinn var boðið til veislu í golfskála Golfklúbbs Öndverðarness og að máltíð lokinni fór fram verðlaunafhending.

Verðlaunahafar voru sem hér segir:

Með forgjöf – konur:

  1. Regína Sigvaldadóttir

Með forgjöf:

  1. Jóhann Rúnar Sigurðsson
  2. Styrmir Steingrímsson
  3. Atli Már Markússon

Án forgjafar:

  1. Kristján Björgvinsson
  2. Árni Freyr Sigurjónsson
  3. Sindri Snær Jónsson

Nándarverðlaun:

  • Jón Baldur Baldursson – 2. braut
  • Hans Óskar Isebarn – 5. braut
  • Jón Gunnar Sigurðsson – 15. braut
  • Sindri Snær Jónsson – 18. braut

Lengsta teighögg kvenna: Rakel Dögg Guðjónsdóttir

Lengsta teighögg karla: Örn Sveinbjörnsson

Golfnefnd Samiðnar þakkar bæði þátttakendum og velunnurum sambandsins kærlega fyrir þeirra þátt í að gera þennan dag að veruleika.