SVEINSPRÓF JAFNGILDI STÚDENTSPRÓFI

Jóhann R. Sigurðsson, formaður FMA, fagnar frumvarpi sem lagt hefur verið fyrir Alþingi um að sveinspróf verði metið til jafns við stúdentspróf sem inntökuskilyrði í háskóla og vonar að það nái fram að ganga. Það væri mikilvægur þáttur í að gera iðnnámi hærra undir höfði og mikilvægt væri að að fá streymi nemenda inní háskólanám með ólíkan bakgrunn með verk- og tæknimenntun en ekki bara stúdentspróf. Sveinspróf hefur að mati formanns FMA hærra gildi en stúdentspróf og því löngu tímabært að þannig sé það metið.

iddnam

Sérstök umræða var um stöðu iðnnáms á Alþingi 24. október sl.

Í greinargerð með frumvarpinu, sem flutt var af Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur segir að í frumvarpinu sé lagt til að skýrt verði kveðið á um það í lögum um háskóla og lögum um opinbera háskóla að nemendur sem hafa lokið sveinsprófi eigi þess kost að fá inngöngu í háskóla. Frumvarpinu er ætlað að gera iðn-, verk- og starfsnámi jafnhátt undir höfði og bóknámi í löggjöf um inntökuskilyrði í háskóla.

Það er afar mikilvægt skref fyrir iðngreinarnar, að það að velja iðnnám loki engum leiðum til frekara framhaldsnáms.

Staðan á málinu er enn á fyrsta stigi og ekki komin dagsetning á 1.umræðu. fróðlegt verður að fylgjast með málinu og löngu tímabært að framkvæma í stað þess að tala, iðnnám er áhugavert,krefjandi,lausnarmiðað,fjölbreytt ásamt því að mikil tækni hefur aukist verulega í þessum framleiðslugreinum og skortur á fóki í þau störf. Laun hafa lagast verulega og möguleikar til góðra launa ásamt auknum möguleikum á áframhaldandi námi án fyrirstöðu nái þetta frumvarp í gegn. Iðnnám er fjölbreytt nám sem býður upp á marga möguleika til góðrar vinnu sem og áframhaldandi náms ef sá vilji er fyrir hendi. Iðnnám er starf fyrir bæði kyn og hvetur Félag málmiðnaðarmanna Akureyri konur til að kynna sér námið enn frekar.   

Umfjöllun Fréttablaðsins um frumvarpið

Hér má skoða frumvarpið á vef Alþingis