Sveinsbréf afhent á Akureyri sl. þriðjudag í Hofi.

Glæsilegur hópur nýsveina fékk sveinsbréfin sín afhent við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri þann 21. apríl.
Bjart og fallegt veður setti skemmtilegan svip á daginn þegar nýsveinar tóku við sveinsbréfum sínum. Athöfnin var vel sótt, þar sem fjölskyldur og vinir fögnuðu þessum merka áfanga með þeim. Ein stúlka/kona var á meðal þeirra sem tók við sveinsbréfi sínu hjá Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri og erum við ánægðir með þann fjölda stúlkna/kvenna sem nú stunda nám í okkar Iðngreinum. forsíðumyndin er af Sóleyju Söndru Gunnlaugardóttir sem veitti viðtöku á sveinsbréfi sínu í Vélvirkjun.                                                                                                                                                                                                                    Að þessu sinni var útskrifað úr fjórum iðngreinum;

Húsasmíði    Hársnyrtiiðn   Stálsmíði  Vélvirkjun

Veittar voru viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í sveinsprófi. Dagur Orri Þorvaldsson og Heiðar Smári Haraldsson voru hæstir á sveinsprófi í stálsmíði og Ása Lind Aradóttir í hársnyrtiiðn. Allir nýsveinar fengu gjafabréf á námskeið að eigin vali hjá Iðunni fræðslusetri og voru hvattir til að huga að símenntun í faginu.

Við óskum nýsveinum innilega til hamingju með áfangann og bjóðum þá velkomna í hóp fagfólks í iðnaði.

 

 

 

 

 

 

Dagur orri tekur við viðukenningu sinni fyrir framúrskarandi árangur.