Samiðn kynnir nýgerðan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins og gildir um alla samninga FMA

Samiðn kynnir nýgerðan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins  fimmtudaginn 15.desember kl.20:00 í fundarsal Lions að Skipagötu 14 Akureyri. Félagsmenn Félags málmiðnaðarmanna Akureyri FMA og Félagi iðn og tæknigreina FIT eru hvattir til að mæta á kynninguna. Boðið verður upp á að vera á zoom fundi sjái félagsmaður sér ekki fært að mæta á fundinn en hann fer í gegnum staðfund og fjarfund og verða settir upp tenglar (linkar) á heimasíðu félaganna sem félagsmaðurinn getur skráð sig inn á. Félagsmenn geta snúið sér síðan á skrifstofu félaganna ef nánari skýringa er þörf. Kynning verður síðan sett upp á heimasíðuna í dag miðvikudag og í framhaldi einnig á ensku. Fyrirkomulag kosninga verður auglýst betur í dag miðvikudag hér á heimasíðunni.