Minnum félagsmenn á að styrkir eru greiddir fyrir jól þennan mánuðinn

Styrkir eru greiddir um hver mánaðarmót og geta félagsmenn séð styrkina inni á félagavefnum þegar þeir skrá sig þar. Styrktarbeiðnir þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir mánaðarmót eigi félagsmaður að ná greiðslum inn á reikning sinn þann mánuðinn. Undantekning á þessu er í desember en þá þurfa styrktarbeiðnir að vera búnar að skila sér fyrir 18. desember en greiðslur styrkja í desember eru framkvæmdar 22. desember. Berist styrkir eftir það eru þeir greiddir annan virkan dag á nýju starfsári. Styrkir eru einungis greiddir fyrir hvert starfsár og þarf að skila inn reikningum hvers árs fyrir hver áramót svo að þeir fáist greiddir.