Kraftbílar í nýtt húsnæði, Bílaverkstæði Norðurlands og Norðutækni sömuleiðis með nýja aðstöðu

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri óskar Kraftbílum, Bílaverkstæði Norðurlands og nýstofnuðu verkstæði Norðurtækni til hamingju með nýjar aðstöður. Kraftbílar hafa opnað eitt stærsta verkstæði sinnar tegundar en þeir reka alhliða þjónustuverkstæði fyrir vörubíla, vinnuvélar og búvelar að Lækjarvöllum 3-5 Hörgársveit.

Bílaverkstæði Norðurlands er að Draupnisgötu 6 og eru þeir þjónustuaðilar BL á Akureyri ásamt því að sinna almennum viðgerðum. Norðurtækni sinnir almennum bíla og vélaviðgerðum.

Í tilefni þess fór formaður félagsins með brauð í morgunkaffinu á þessa vinnustaði og óskaði starfsmönnum til hamingju með ný húsnæði.

Nýtt húsnæði Kraftbíla

Starfsmenn á kraftbílum.

 

Bílaverkstæði Norðurlands tók við viðgerðar og eftirlits þjónustu af Kraftbílum fyrir BL á Akureyri við flutning Kraftbíla í nýtt húsnæði að Lækjarvöllum og opnuðu þjónustuna í hluta af því húsi sem Kraftbílar voru í áður. að Draupnisgötu 6.

 

 

Norðurtækni opnaði nú á dögunum í hinum helmingi Draupnisgötu 6 þar sem Kraftbílar voru áður til húsa en þeir sinna almennum viðgerðum á bílum og vinnuvélum.