Minnum á inneignarbréf hjá Flugfélagi Íslands

Félagið hefur hafið sölu á inneignarbréfum Flugfélags Íslands, inneignarbréfin eru að upphæð kr 10.000.- en félagsmenn FMA  fá 10% afslátt og greiða kr. 9.000.-  hægt er að kaupa eins mörg bréf og hver vill. 

Mjög einfalt er að nota bréfin en á þeim er kóði sem settur er inn þegar bókað er á netinu.

Til að kaupa bréfin er hægt að koma í afgreiðsluna hjá félaginu, senda tölvupóst eða hringja í síma 455-1050.