Iðnfélögin í sameiginlegt húsnæði í Reykjavík

Stórhöfði 31
Stórhöfði 31

Samiðn ásamt Byggiðn og Félagi iðn- og tæknigreina undirrituðu í morgun samning um kaup á hlut Birtu lífeyrissjóðs í Stórhöfða 31 þar sem Rafiðnaðarsambandið, Matvís og Grafía eru til húsa. Með kaupunum sameinast undir einu þaki sex félög og sambönd iðnaðarmanna sem mun styrkja þau og efla til frekari þjónustu við sína félagsmenn. Birta Lífeyrissjóður mun vera á sama stað sem styrkir einnig tengsl félagsmanna við sinn lífeyrissjóð.
Gert er ráð fyrir að um ár taki að gera hið nýja húsnæði klárt og er stefnt að flutningum haustið 2018.