Iðnaðarmannamót í golfi verður haldið laugardaginn 16.september.

Golfmót iðnfélaganna verður haldið laugardaginn 16.september á Akureyri að Golfklúbbi Akureyrar GA. að Jaðri. Mæting er kl.12:00 í súpu og ræst verður út af öllum teigum kl.13:00

Verðlaun verða fyrir efstu 4 sætin en leikin verður tveggja manna Texas Scramble, samanlögð forgjöf deilt með 4. Veitt verða nándarverðlaun á öllum par 3 holunum og 2 högg á 10 holu ásamt fleirum skemmtilegum uppákomum matur að loknu móti og dregið verður úr skorkortum að því loknu. 

Mótið er fyrir félagsmenn iðnfélaganna  og þeir geta boðið með sér maka eða einum gesti á meðan pláss er. Skrá þarf úr hvaða iðnfélagi viðkomandi skráir sig hjá.