Hvetjum félagsmenn til að kynna sér réttindi sín á heimasíðunni en breyting varð nýverið á styrkjum. Hundahald leyft í Jaðarleiti 6.

Hvetjum félagsmenn til að kynna sér réttindi sín á heimasíðunni en breyting varð nýverið á styrkjum. Líkamsræktarstyrkurinn heitir nú Heilsustyrkur og þar fellur meira undir en áður var. Skógarböðin eru nú komin þar undir þann styrk. Stjórn félagsins hefur einnig ákveðið að Jaðarleiti 6. íbúð 101 á jarðhæð að þar megi nú leigja og hafa með sér hund í þá íbúð. Umgengnisreglur má sjá hér.

1. Hafið hundinn í bandi og haldið honum þétt að ykkur á meðan farið er inn og út úr húsi. 2. Vinsamlegast tryggið að hundurinn sé snyrtilegur og laus við ótheinindi þegar komið er í íbúðina.                                                                                                                                                      3. hundar eru ekki leyfðir upp í rúmmum, sófum né á öðrum húsmunum.                               4. Það er gerð krafu um að hundaeigandi ryksugi íbúðina og fjarlægi öll sjánleg hundahár eftir dvöl sína í íbúðinni. Að öðru leiti gilda þrif sem að leigusamningurinn segir gagnvart þrifunum.                                                                                                                                                  5. Ekki skilja hundinn eftir einan í íbúðinni, gætið þess að hundurinn ónáði ekki aðra íbúa á meðan dvöl stendur.                                                                                                                              6. Komi kvartanir eftir slíka dvöl frá þrif fyrirtækinu eða íbúum getur það varðað brottvísun eða leigfall hjá viðkomandi félagsmanni í einhvern tíma.                                                               7. Leigjandi ber fulla ábyrgð á þeim tjónum sem hundurinn kann að valda á húsmunum eða á eigninni. Ef kvörtun kemur frá þriffyrirtæki  verður þrifið sérstaklega og félagsmaður rukkaður um aukaþrif ef slíkt kemur upp á. 

  1. Hundhald

Stjórn félagsins telur að um tímabundna tilraun sé að ræða og ákvörðun verður tekin fyrir vorið hvort það verði áfram leigt með leyfi fyrir hunda. Við vonumst til að þeir sem eiga hunda sem og aðrir leigjendur beri virðingu gagnvart eign sinni og hvorum öðrum. Að við sýnum hvorum öðrum þá tillitssemi að ganga enn betur um, sérstaklega ef hundur sé með í för.  Við gerum okkur grein fyrir í stjórn að fjölgun á gæludýraeign þarf að svara og nú með lögum um orlofshús og eftir könnun þar sem meirihluti í þeirri könnun fyrr á árinu og lýsti yfir vilja til að leigja íbúð í Reykjavík þar sem hundahald sé leyft.

Með félagskveðjum stjórnin.