Kæru félagsmenn
Heilsa er eitt það mikilvægasta sem við eigum. Í tilefni þess höfum við í samstarfi við Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri ákveðið að bjóða félagsmönnum upp á Heilsufarsskoðun hjá FSA. Í stærri fyrirtækjum er gott að
kjósa einn fulltrúa (trúnaðarmaður fyrirtækisins tilvalinn) að eigin vali og hefur hann samband við FSA í gegnum póstfangið thora@fsa.is
og tilkynna hversu margir ætla að nýta skoðunina frá fyrirtækinu og mun FSA senda til baka tímasetningar á starfsmennina. Félagið
greiðir helming kostnaðar og sendir FSA þá rukkun beint á félagið.
Stjórn Félagsins hefur sent fyrirtækjunum bréf um þessa skoðun og mælst fyrir að fyrirtækið taki einnig þátt í
kostnaði starfsmanns við skoðunina. Hvetjum félagsmenn til að ræða við forsvarsmenn síns fyrirtækis um styrk.
Átakið hefst 27. september og stendur til loka nóvembers. Hér fyrir neðan má sjá í hverju skoðunin felst.
Í heilsufarsmælingum er skoðað og metið:
Blóðþrýstingur og púls
Öndunarmettun
Þyngdarstuðull (BMI) mæling, vigtun og hæðarmæling
Blóðpróf / blóðhagur, blóðsykur og blóðfita einnig er hægt að fá þvagskimun.
Ef það er vilji félagsmanns að fá þvagskimun biður hann um það annaðhvort á staðnum og skilar inn prufu síðar eða
kemur með hana með sér í skoðunina í samráði við tengilið FSA.
Skoðunin kostar 10.000 krónur og af því greiðir félagið helming.
Tengiliður sjúkrahúss er Þóra Ákadóttir starfsmannastjóri sjúkrahússins. thora@fsa.is