Grunndeildarnemar í málminum fá vinnugalla að gjöf

Grunndeildarnemar í málminum fá vinnugalla að gjöf en formaður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri hefur staðið fyrir því að iðnfélögin í málminum gefi grunndeild VMA galla í gjöf og þrjú félög standa að því og fyrir utan FMA þá er það FIT og VM sem eru gefendur að þessum göllum. Formaður fór á dögunum og afhenti þessa góðu gjöf með kveðju frá félögunum og minnti þau á að kynna sér réttindi sín og stéttarfélög en það fer eftir því hvar viðkomandi vinnur hvar hann geti valið sér félag en það félag þarf að eiga samningsréttinn að þeirri vinnu sem viðkomandi vinnur við. Formaður ræddi um mikilvægi þess að nemendur kynni sér réttindi sín.