Fundur fólksins var haldinn 8. og 9. septemberí Hofi Akureyri

Samiðn lagði sitt af mörkum á FUNDI FÓLKSINS sem er er lífleg tveggja daga lýðræðishátíð þar sem saman kemur fólk úr ólíkum áttum til að ræða fjölbreytt málefni.  Á myndinni má sjá fulltrúa Samiðnar Sighvat og Evu sem komu frá Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri. Þau tóku þátt í sófafundi sem leikkonan Saga Garðarsdóttir stýrði af sinni alkunnu snilld. Á laugardeginum tóku þau þátt í málþingi ungs fólks um stéttarfélög og stóðu sig mjög vel í þeirri umræðu ásamt því að vera andlit Samiðnar í sameiginlegum bás stéttarfélagann á svæðinu. Þess ber að geta að þau höfðu lítinn fyrirvara á undirbúningi og er stjórn FMA þeim þakklát fyrir þáttökuna en þetta er í fyrsta sinn sem félagið í samvinnu við Samiðnarfélögin tekur þátt í þessum fundi og telur að þetta muni framvegis verða eitt af verkefnum félagsins. 

Meðal efnisflokka voru: 
Af hverju borga ég í stéttarfélög?  
Ungt fólk og stéttarfélög. 
Hver er staðan í stefnumótun stjórnvalda í málefnum eldra fólks? 
Staða íslenskra fjölmiðla? 
Verður framtíðarkennarinn app?  
Fátækt er ekki aumingjaskapur.

Upplýsingar, samtal og gagnkvæm virðing eru undirstöður lýðræðisins og er eitt af markmiðum hátíðarinnar að hvetja til uppbyggjandi samtals.  Félagasamtök fá tækifæri á Fundi Fólksins til að koma málefnum sínum á framfæri, upplýsa almenning og ráðamenn um sín baráttumál og leita eftir stuðningi. Með því að hlusta og ræða saman í eigin persónu aukum við traust og skilning milli ólíkra aðila samfélagsins.