Fulltrúar launamanna í stjórn Birtu lífeyrissjóðs

Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir fulltrúum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2019–2021. Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.8) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna.

Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn og einn varamann til tveggja ára í stjórn sjóðsins.

Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn umsókn í formi útfyllts framboðseyðublaðs, sem er að finna á vefnum birta.is, á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 28. febrúar 2019.

ÞEIR SEM GEFA KOST Á SÉR SKULU

· vera launamenn sem greiða iðgjald í Birtu lífeyrissjóð

· ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar

· vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME, samþykktum sjóðsins og starfsreglum valnefndar.

· Skila inn útfylltu framboðseyðublaði með drengskaparyfirlýsingu um að þeir uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu Allar nánari upplýsingar um stjórnarkjörið, framboðseyðublaðið/yfirlýsinguna og sjóðinn má finna á vefnum birta.is

Allar nánari upplýsingar um stjórnarkjörið, framboðseyðublaðið/yfirlýsinguna og sjóðinn má finna á vefnum birta.is

BIRTA LÍFEYRISSJÓÐUR er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins. Hann varð til við sameiningu Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs í desember 2016.