FMA, VM og FIT gáfu galla til nýnema í Verkmenntaskóla Akureyrar

Gallarnir eru gjöf til nemenda sem eru að byrja á grunndeild málm- og véltæknigreina hjá Verkmenntaskóla Akureyrar . Ætlast er til að nemendur séu klæddir göllunum þegar þeir stunda nám í verklegum greinum. Einnig skulu nemendur vera í öryggisskóm öllum stundum, nota öryggisgleraugu og hanska þar sem það á við. Þeir sem gefa nemendum gallana eru FMA, VM og FIT sem er Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri, Félag vélstjóra og málmtæknimann og Félag iðn og tæknigreina. Okkur hjá Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri finnst gott að geta tekið þátt í góðu verkefni eins og þetta er og samstarf iðnfélaganna er til fyrirmyndar og í dag beita þau sér saman að ýmsum samfélagsverkefnum.