Fjarnám í endurmenntun atvinnubílstjóra - Vistakstur og öryggi í akstri 10 okt. hjá Iðunni Fræðslusetri

Atvinnubílstjórar

Bílstjórinn þekki hugmyndafræði vistaksturs og með hvaða hætti hann getur lágmarkað eldsneytiseyðslu og umhverfismengun og hámarkað öryggi sitt og annarra í umferðinni með réttu aksturslagi. Að því er stefnt að bílstjórinn: Skilji mikilvægi mengunarvarna og umhverfisverndar, þekki virkni vélarinnar og þau efni sem valda hvað mestum skaða í umhverfinu, aki með vistvænum hætti þannig að hann geti lágmarkað eldsneytiseyðslu, t.d. með skynsamlegri notkun vélarafls og hemla, aki af öryggi og framsýni og geti greint vísbendingar um hættur í umferðinni. 

Verð til félagsmanna er 9.500.-kr.

Tengiliður

Sigurður Svavar Indriðason

sigurdur@idan.is

SKRÁ MIG