Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 15. maí nk., kl. 17.00 í Hofi Akureyri. Fundarsalur Hamrar

Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 15. maí nk., kl. 17.00 í Hofi Akureyri. Fundurinn er sameiginlegur með öðrum iðnaðarmannafélögum sem stóðu að samfloti samninga við Samtök atvinnulífsins. Fundarsalur Hamrar. 

DAGSKRÁ: 1. Kynning kjarasamnings Iðnfélaganna og SA sem undirritaður var þann 3. maí 2019. Að lokinni kynningu gefst fundarmönnum tækifæri á spurningum. 


Boðið verður upp á veitingar í fundarlok.

Félögin verða svo með aðstöðu í forsalnum fyrir framan inngöngu í aðalsal eða Naustinu að loknum mat og bjóða félagsmönnum uppá spjall um samningana og almenn félagsmál ef þeir óski þess.

Aðrir félagsfundir verða haldnir á Siglufirði fimmtudaginn 16. maí kl.17:00 í fundarsal stéttarfélaganna Eyrargötu 24b og

á Dalvík í menningarhúsinu Berg kl.12:00 föstudaginn 17. maí veitingar verða í boði á öllum fundum og þeir haldnir sameiginlegir með öllum félagsmönnum iðnfélaganna.

Með félagskveðjum Stjórn FMA