Félagsfundur félags málmiðnaðarmanna Akureyri

Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 8. nóvember kl 17.30 í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, 5 hæð í norðursal hjá Strikinu og miðvikudaginn 7. nóvember kl 17.00 á skrifstofu stéttarfélaganna á Siglufirði við Eyrargötu 24b fyrir félagsmenn á Tröllaskaga.

Dagskrá:

  1. Komandi kjarasamningar, Hilmar Harðarson formaður Samiðnar kynnir undirbúning Samiðnar og upplegg iðnaðarsamfélagsins.
  2. Formaður FMA fer yfir vinnu samninganefndar félagsins og niðurstöðu könnunar í byrjun ársins.
  3. Önnur mál.

Léttar veitingar í boði.

Hvetjum félagsmenn til að mæta.