Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri var með vel heppnaða kynningu fyrir nemendur á grunndeild málm.

Hluti stjórnar fór í heimsókn í Verkmenntaskólann og spjallaði við grunndeildarnemendur um iðngreinarvinnu og skyldur og stéttarfélög. Hörður Óskarsson og aðrir kennarar málmsviðsins og vélstjórnar ásamt nemendum tóku vél á móti okkur og myndaðist góð umræða að lokinn yfirferð okkar fjögurra stjórnarmanna. En formaðurinn Jóhann Rúnar Sigurðsson ásamt þremur stjórnarmönnum sem voru með honum og kynntu sig sem og starfssemi félagsins ásamt réttindum og skyldum. 

Formaðurinn er menntaður bifvélavirki og með meistararéttindi i þeirri grein, hann viðurkenndi að ef hann ætti að fara að vinna aftur í þeirri grein þyrfti hann á mikilli endurmenntun á að halda þar sem að tækniþróunini í iðnaðargreinum væri orðin afskaplega ör. Hann sagðist nú ekki vilja vera beint leiðinlegur en það að klára iðnmenntun með sveinsprófi þýddi að þróunin í greinunum skapaði það að við þyrftum á stöðugri endurmenntun að halda. þar ættu iðngreinarnar gott fyrirtæki sem Iðan Fræðslusetur er en þar eru stórkostleg tækifæri fyrir fólk til endurmenntunar. þau störf sem þeir vinna. því næst tók Bergvin Bessason varaformaður FMA og blikkari við og fór yfir sýna sýn á mikilvægi iðnnáms og um sitt starf sem varaformaður og trúnaðarmaður félagsins. Næst koma Andri Ólafsson sem er fulltrúi FMA í ASÍ ung og umsjónarmaður sveinsprófa í stálsmíðum hér á Akureyri yfir sýn störf og mikilvægi þess að kynna sér stéttarfélög og vettfang ASÍ ung hann nefndi sem dæmi að þegar hann var sjálfur í námi en slasaðist í vinnu að þá leitaði hann til formanns félagsins til að vita um sín réttindi en vinnuveitandinn taldi hann ekki eiga rétt. þar hefði hann kynnst mikilvægi þess að vera í stéttarfélagi. Lokst tók þórhallur Andri við en hann vann í eitt ár í blikksmíðinni og lærði síðan pípulagnir og fór yfir sýna sýn um það starf og sem varstjórnarmaður og hversu óvænt honum fannst starfsemi félagsins vera með þeirri þáttöku en varamenn eru gjaldgengir á fundi stjórnar og leysa af ef aðalmenn komast ekki á fundi. Félagið gaf nemendum derhúfur merktar félaginu og formaður sleit síðan fundinum með þeim orðum að það væri ánægjulegt að sjá fjölda stúlkna/konur sem nú væru í námi í okkar greinum en alls eru 14 stúlkur/konur í námi í iðngreinum skólans, hann nefndi það að konur/stúlkur á landsvísu hefðu stofnað félag iðnkvenna og stæði til að fá formamann þeirra norður til kynningar á þeirri starfsemi og myndi hann þá láta þá nema í VMA vita þegar að til þess kæmi. FMA bauð síðan upp á pizzu og gos og  var tekið létt spjall í við það tækifæri.