Hringferð ASÍ - Fundur á Akureyri

Í maí mánuði 2018 hélt skrifstofa ASÍ í fundarherferð um landið þar sem haldnir voru 10 fundir til að undirbúa 43. þing Alþýðusambandsins sem fer fram 24.-26. október 2018. 

Á fundunum voru þrjú af viðfangsefni þingsins kynnt með stuttum framsögum auk þess sem Gylfi Arnbjörnsson hélt erindi um áskoranir á vinnumarkaði og valkosti í kjarabaráttu (sjá hér að ofan). Þá ávarpaði formaður stéttarfélags á staðnum hvern fund. Eftirfarandi málefni voru til umfjöllunar:

a. Tekjuskipting og jöfnuður
b. Tækniþróun og skipulag vinnunnar
c. Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs

Tilgangur fundanna var að auðvelda þátttakendum að tjá sig um það sem á þeim brennur, kynna þeim viðfangsefnin og gera þeim kleift að koma með ábendingar og tillögur að áherslum og aðgerðum af hálfu Alþýðusambandsins og aðildarfélaganna. Notast var við fundarform sem byggir á sem mestri virkni fundarmanna.

Eftir seinni fundarröðina sem farin verður í september (þá verður rætt um húsnæðis- og velferðarmál) verða lögð fyrir miðstjórn drög að stefnuyfirlýsingu og aðgerðaráætlun byggð á niðurstöðum fundanna, sem síðan verður lögð fyrir 43. þing ASÍ til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.

Hér fyrir neðan má sjá það efni sem kom út úr fundinum sem haldin var á Akureyri.

Niðurstöður annarra funda má sjá hér.

Fundur haldin 3. maí á Akureyri

Eftirtalin fimm atriði fengu flest atkvæði í hverjum málaflokki fyrir sig.

Tekjuskipting og jöfnuður

Hækka persónuafslátt 23
Styttri vinnuviku 17
Lágmarkslaun fylgi lágmarks framfærslu 17
Félagslegt húsnæðiskerfi (verkamannabústaði) 12
Leigufélög sem ekki eru byggð á gróðamarkmiðum 10

Tækniþróun og skipulag vinnunnar

Forgangur-ríkisstarfsmenn og fólk á almennum vinnumarkaði eiga að hafa sömu réttindi 21
Sveigjanleiki vegna veikinda í fjölskyldunni 20
Stytta vinnuvikuna án skerðingar launa 13
Stytta vinnuvikuna og hækka yfirvinnuálag 9
Vinnuvikan verði ekki meira en 4 dagar eða 32 tíma á mannsæmandi launum fyrir alla 9

Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs

Auka þarf símenntun og endurmenntun til að fólk nái að fylgja eftir tækniþróun 21
Aukin samvinna milli félaga (sameiningar?) 20
Lögverndun starfa 14
Verja frítímann. (stoppa á símtöl og tölvupósta utan vinnu) 10
Hluti lífsleiknináms ætti að vera hvetjandi til aukinnar þátttöku ungs fólks í verkalýðsmálum 10

Nánar um niðurstöður fundarins á Akureyri

Myndir frá fundinum á Akureyri sem haldinn var 3. maí 2018 er að finna hér.