Desemberuppbót fyrir 2018

 

DESEMBERUPPBÓT 2018

2015 02 11 snjor tre

Desemberuppbót, að meðtöldu orlofi, er kr. 89.000 fyrir eftirtalda kjarasamninga:

  • Samtök atvinnulífsins
  • Bílgreinasambandið
  • Félag pípulagningameistara
  • Ríkið

Upphæð desemberuppbótar í eftirtöldum kjarasamningum er:

  • Reykjavíkurborg / Faxaflóahafnir: kr 97.100,-
  • Strætó kr. 97.100,-
  • OR-ON kr. 103.300,-
  • Samband íslenskra sveitafélaga 113.000,-
  • Landsvirkjun 128.850,-

Desemberuppbótin skal greiðast í síðasta lagi 15. desember miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Starfsfólk sem verið hefur samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi 1. desember á rétt á desemberuppbót.

Starfsfólk í ákvæðisvinnu fær greidda desemberuppbót líkt og aðrir.

Sá tími sem starfsmaður er í fæðingarorlofi telst sem starfstími við útreikning desemberuppbótar.

Iðnnemar í fullu starfi hjá fyrirtæki á námstíma fá fulla desemberuppbót.

Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.

Reikniregla: Desemberppbót deilt með 45 margfaldað með unnum vikum