Afhending sveinsbréfa fór fram laugardaginn 21. október

sveinsbréfaafhending 2017
sveinsbréfaafhending 2017

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri og Byggiðn, Félag byggingarmanna, afhentu sveinsbréf laugardaginn 21. október í Alþýðuhúsinu í samstarfi við Iðunna Fræðslusetur. Alls voru 9 sveinsbréf í málmiðnaðinum og 27 sveinsbréf í byggingargreinum þetta árið. Þetta var í fjórða sinn sem þetta er gert með þessum hætti og hefur þetta fyrirkomulag mælst vel fyrir. Með þessu móti geta sveinar boðið fjölskyldunni sinni að vera viðstaddir á þessum gleðilega degi og að njóta veitinga sem félögin bjóða upp á í tilefni dagsins. Þetta á ekki síður við um meistara þessara sveina að geta verið viðstaddir afhendinguna en þeir eru jú stór þáttur námsins hjá sveinunum. Einnig þá er það samdóma álit stjórna félaganna tveggja að með þessu séu félögin að sína sínum greinum enn meiri virðingu með beinni þáttöku í þessum degi sveinanna. Félag málmiðnaðarmanna Akureyri afhenti 7 bifvélavirkjum , einum rennismið og  einum stálsmið sveinsbréf. Byggiðn afhenti 14 húsasmiðum, 9 málurum og 4 húsgagnasmiðum sveinsbréf. Félögin óska þessum sveinum enn og aftur til hamingju með útskriftina.

Fleiri myndir