Undirritaðir harma þær aðferðir og stjórnarhætti sem stjórn Eflingar beitir undir merkjum skipulagsbreytinga innan félagsins. Sem atvinnurekandi hefur Efling brugðist starfsfólki sínu bæði í orðum og gjörðum, nú síðast með hópuppsögn sem á sér ekki fordæmi innan íslensku verkalýðshreyfingarinnar. Því lýsum við yfir þungum áhyggjum yfir stöðu og líðan starfsmanna Eflingar. Ekki er gerð athugasemd við að fyrirtæki eða stéttarfélög ráðist í skipulagsbreytingar, en þær breytingar verða að vera framkvæmdar á mannlegan hátt með velferð og líðan starfsmanna í huga.
Verkalýðshreyfingin verður að fara fram með góðu fordæmi á vinnumarkaði og tryggja að aðbúnaður starfsfólks innan hennar sé með þeim hætti sem krafa er gerð um á almennum vinnumarkaði. Að öðrum kosti er hætta á að sú sérþekking sem býr í verðmætum mannauð innan hreyfingarinnar glatist.
Jóhann Rúnar Sigurðsson formaður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri.
Eiður Stefánsson formaður Félags Verslunar og skrifstofufólks Akureyri
Trausti Jörundsson formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar