Til hamingju Niceair!

Flugvél hins nýja flugfélags Niceair kom til Akureyrar í gær en lagt verður upp í jómfrúarferð félagsins á fimmtudag. Á vef ASÍ segir að síðustu vikur hafa viðræður verið í gangi á milli hins nýja flugfélags og Flugfreyjufélags Íslands um kjarasamning vegna flugfreyja og flugþjóna og í dag var nýr kjarasamningur undirritaður og samþykktur. Eins og áður hefur verið fjallað um eru ekki algildir kjarasamningar um störf flugfreyja og flugþjóna hér á landi og því þarf að semja við hvert flugfélag fyrir sig. Það er einstaklega ánægjulegt að hið nýja flugfélag leggi metnað í að ganga frá kjarasamningum og verja þannig réttindi og kjör síns starfsfólks. Með því móti er líklegra að hæft og gott starfsfólk fáist til starfa til lengri tíma og haldnar eru í heiðri vinnureglur á íslenskum vinnumarkaði. 

Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður FFÍ, segir: „Það er með gleði og bjartsýni sem við hjá FFÍ óskum Niceair til hamingju með að hafa tekið á loft. FFÍ fagnar því að Niceair hafi gengið til viðræðna og lokið kjarasamningi við félagið með árangursríkum hætti og bjóðum við nýja félagsmenn hjartanlega velkomna. Viðræðuferlið hefur í alla staði verið farsælt og gott og hlökkum við til áframhaldandi samstarfs.“

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir: „Ég vil óska nýju flugfélagi til hamingju með heilladrjúg fyrstu skref og óska þeim velfarnaðar í framtíðinni. Það er ljóst að það á ekki að tjalda til einnar nætur og það er góð tilfinning að geta mælt með nýju flugfélagi við viðskiptavini, fjárfesta og starfsfólk.“

Formaður félagsins óskar nýju flugfélagi heilla og óska öllum sem að því koma til hamingju og velfarnaðar.  það eru klárlega margir ánægði með þennan valkost og þar á meðal stjórn FMA.