Nýsveinar taka á móti sveinsbréfum á Akureyri
Það var góð mæting á afhendingu sveinsbréfa í Nausti, Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gær 10. maí þegar yfir 60 nýsveinar tóku á móti sveinsbréfunum sínum.
Afhent voru sveinsbréf í vélvirkjun, pípulögnum og húsasmíði. Flestir voru nýsveinarnir í húsasmíði.
Afhendingunni stýrði Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs en með henni voru Jóhann Rúnar Sigurðsson formaður FMA og Bergvin Bessason varaformaður FMA, Jón Bjarni Jónsson formaður Byggiðnar og varaformaður Samiðnar ásamt Sigmundi Magnússyni starfsmanni Byggiðnar á Akureyri.
Iðan, Byggiðn og Félag málmiðnaðarmanna Akureyri óska nýsveinunum til hamingju með áfangann. Hér eru fleiri myndir:
