Saga ASÍ í rafrænt form

Saga ASÍ sem kom út í 2 bindum árið 2013, er nú komin á rafrænt form. Hönnuð var sérstök vefsíða utan um þetta mikla verk sem gefur ýmsa möguleika varðandi deilingar, stækka myndir og skoða tilvísanir með því að þysja yfir tilvísananúmer. 

Höfundur bókanna er Sumarliði Ísleifsson sagnfræðingur. Kosmos og kaos sá um vefhönnun og rafræna uppsetningu.

Hægt er að smella á stóru myndina til að komast á vefsíðuna.