Námskeið hjá Iðunni Fræðslusetri á Akureyri laugardaginn 13.desember í skapandi tækni, föndri og jólastemmingu.

Aðventusmiðjan - Ljós í skammdeginu. Komdu með unglinginn á heimilinu að föndra. Smíðaðu þinn eigin lampa með laserskurði, þrívíddarprentun og forritaðu örstýringu sem þú svo tengir við snjalltæki. Tveir fyrir einn námskeið, aldursviðmið er 13 ára.Fyrir hverja:
Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á skapandi tækni, föndri og jólastemningu.

Markmið: Að þátttakendur læri að hanna, setja saman og forrita ljósalampa með örstýringu.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • Hönnun skráa fyrir laserskera
  • Grunnatriði laserskurðar og 3D-prentunar
  • Samsetningu íhluta í jólalampa (plast, rafmagn, LED-ljós, örtölvu o.fl.)
  • Forritun ljósastýringar fyrir takka og snjalltæki
  • Sköpunargleði og útfærslu eigin hönnunar
  •  
  • Að loknu námskeiði á nemandi að:
  • Hafa innsýn í hönnun og undirbúning skráa fyrir laserskurð og 3D-prentun
  • Geta tengt saman einfaldan rafbúnað og lóðað íhluti                                                                                                                       Geta forritað örtölvu til að stjórna LED-ljósum                                                                                                                                 Geta framleitt og sett saman eigin lampa

Aðrar upplýsingar:

Allir þátttakendur taka lampa með heim að loknu námskeiði.

Staðsetning
Fab Lab, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Hringteig 2, 600 Akureyri
 
Fyrirkomulag kennslu
Staðnám
13. desember 2025 kl: 10:00 - 14:00
Námsmat
Fullunninn lampi
Tengiliður
Guðrún Hjaltalín Guðjónsdóttir - gudrun@idan.is