„Löngu tíma­bær breyting, sem jafnar stöðu verk- og bók­náms“

Alþingi samþykkti þann 11 maí sl. lagabreytingu sem auðveldar iðnmenntuðum aðgengi að háskólum landsins. Frumvarp menntamálaráðherra þess efnis var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Í frumvarpinu felst breyting á orðalagi sem heimilar að iðnmenntun sé fullgild sem iðntökuskilyrði í háskóla.

Þar með er mikilli hindrun rutt úr vegi svo fólk með fjölbreyttari bakgrunn fái aðgang að háskólum. Um sé að ræða löngu tímabæra breytingu og fagnar iðnaðarsamfélagið í heild sinni þessari breytingu en þau hafa barist fyrir þessu í talsvert langan tíma.