Kennslufræði fyrir iðnmeistara í VMA

Um nokkurra ára skeið hefur ekki verið hægt að fara í nám í  kennslufræði  fyrir iðnmeistara hér fyrir norðan. Þetta hefur leitt til þess að skortur er á iðnmeisturum á Norðurlandi sem eru með kennsluréttindi. Við í VMA höfum miklar áhyggjur af þessari þróun og eftir samtal við Menntavísindasvið Háskóla Íslands var niðurstaðan sú að nemendur héðan af þessu svæði gætu tekið staðarlotur sínar í húsnæði VMA í stað þess að þurfa að fara suður. 

Nánari upplýsingar um námið er í viðhengi og hvet ég alla þá sem hafa áhuga á að bæta við sig þessari menntun að nýtja tækifærið. 

Nánari upplýsingar um námið og umsóknarferlið er á heimasíðu HÍ og í viðhengi eru upplýsingar um námið og tengiliði sem hægt er að hafa samband við til að fá frekari upplýsingar. 

Til að efla enn frekar atvinnulífið og fjölga iðnmenntuðum einstaklingum á þessu svæði þá þarf skólinn að hafa kennara í þeim greinum sem kenndar eru við skólann. 

Þeir sem uppfylla inngangskröfur eru iðnmeistarar og vélstjórar með full réttindi. Umsóknarfrestur er til 5. júní n.k.  

Kærar kveðjur úr VMA

Sigríður Huld Jónsdóttir

Skólameistari

huld@vma.is