Iðnaðamannasamfélagið fundar með Samtökum atvinnulífsins og miðar samtölunum áleiðis í rólegheitunum

Í vikunni hafa verið haldir fjölmargir samningafundir með viðsemjendum okkar hjá Samtökum atvinnulífsins. Sérkröfur iðnaðarmannafélaganna hafa verið ræddar sem er mikilvægt í þessu ferli. Dæmi um okkar kröfur er stytting vinnuvikunnar. Iðnaðarmenn vinna almennt mikla yfirvinnu. Þeir vilja skiljanlega draga úr heildarvinnutímanum. Iðnaðarmenn eiga að geta lifað mannsæmandi lífi á laununum án þess að þurfa að vinna dag og nótt við iðju sína. 

 
Það er augljóst að meta þarf menntun iðnaðarmanna til launa enda ein mikilvægasta stétt landsins. Þjóðfélagið þarf vel menntað og starfsglatt fólk við störf í iðngreinum. Ávinningur aukinnar menntunar þarf að skila sér í vasa iðnaðarmanna. 
 
Bæta þarf ákvæði kjarasamninga á ýmsum sviðum þannig að áherslur um fjölskyldulíf og eðlilegan frítíma nái fram að ganga. Mjög algengt er til að mynda að iðnaðarmenn standa bakvaktir. Mikilvægt er að það verði viðurkennt að bakvaktir skerða frímatíma og fjölskyldulíf. Það er mikilvægt að greitt sé fyrir þær í samræmi við það.  
 
Það skiptir okkur miklu máli að fjölga þeim krónum sem sitja eftir í veskjum félagsmanna. Af þeim sökum er það ein meginkrafa okkar að unnið verði að auknum kaupmætti launa og að þeirri stefnu verði viðhaldið, að laun hækki nokkuð verulega umfram verðbólgu á komandi árum. Ráðstöfunartekjur verða að aukast. 
 
Iðnaðarmenn gera kröfu um að tekið verði á húsnæðiskerfi þjóðarinnar, bæði vegna fasteignakaupa og vegna húsaleigu. Ljóst er, að þó að algengara sé að iðnaðarmenn eigi fasteignir fremur en sumir aðrir hópar, þá kemur sú staðreynd engu að síður illa við iðnaðarmenn, að fjármögnun húsnæðis sé lang erfiðasti þátturinn við að eignast húsnæði. Gríðarlega hátt vaxtastig og verulega óréttlátt fyrirkomulag við húsnæðiskaup er veruleiki sem þarf að laga. 
 
Við getum ekki litið hjá því að fjármögnun fasteignakaupa á landsbyggðinni er ekki síður erfið. Þar eru fjármögnunarkostir oft æði fábrotnir. 
 
Lykilatriðið er að lækka vaxtagreiðslur hér á landi. Okurvextir sem almenningi standa til boða eru ekki ásættanlegir og þá skiptir ekki máli hvort um verðtryggð eða óverðtryggð lán er að ræða. Háir vextir gera afborganir nánast óyfirstíganlegar í mörgum tilvikum. Þetta þarf að laga.
 
Fundir með SA halda áfram næstu daga og verður reynt til þrautar að sjá til lands. Hvort það tekst veltur mest  á því hvort fulltrúar SA sýni almennilega á spilin og verði við sanngjörnum kröfum okkar.