FRÉTTIR Auglýst eftir umsóknum úr Vinnustaðanámssjóði

RANNÍS vekur athygli á því að frestur til umsóknar úr Vinnustaðanámssjóði er 20. nóvember. Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 2020, kl. 16:00.

Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Umsóknargögn og leiðbeiningar er að finna hér. Umsóknum skal skilað á rafrænu formi. Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, sími 515 5843, skuli.leifsson@rannis.is.