Fjórðungur á erfitt með að ná endum saman

Um fjórðungur launafólks á erfitt með að ná endum saman samkvæmt nýrri könnun Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Erfiðleikarnir mestir hjá atvinnulausum og innflytjendum. 

Könnunin var lögð fyrir félaga í aðildarfélögum ASÍ og BSRB, þar sem spurt var um stöðu launafólks og atvinnulausra. Fram kemur á vef ASÍ að ákveðið hafi verið að gera könnunina vegna þeirra miklu erfiðleika sem hluti launafólks býr við vegna heimsfaraldur kórónuveirunnar, sérstaklega sá stóri hópur sem misst hefur vinnuna.

„Niðurstöðurnar sýna verulegan mun á fjárhagsstöðu félagsfólks aðildarfélaga ASÍ og BSRB eftir kyni. Alls sögðust 23,7% þeirra sem tóku þátt í könnuninni að þeir ættu frekar erfitt eða erfitt með að láta enda ná saman. Hlutfallið var mun hærra meðal kvenna, 27,2% en hjá körlum mældist það um 19,5%.“

Fram kemur að staða atvinnulausra sé verri en staða launafólks. Helmingur atvinnulausra á erfitt með að láta enda ná saman.

Könnunin varpar líka ljósi á að atvinnuleysi er mun hærra á meðal innflytjenda en innfæddra, 24% samanborið við rúm 15%. Alls sögðust um 34,9% innflytjenda eiga erfitt eða frekar erfitt með að láta enda ná saman. Það er mun hærra hlutfall en meðal innfæddra, þar sem 26,2% voru í sömu stöðu. Innflytjendur líða frekar efnahagslegan skort og hafa í meira mæli þurft að þiggja matar- og/eða fjárhagsaðstoð.

Einnig var spurt um líkamlega og andlega heilsu. Atvinnulausir glíma við verri heilsu og eru líklegri til að hafa neitað sér um heilbrigðisþjónustu. „Andleg heilsa atvinnulausra mælist einnig mun verri hjá konum en körlum en athygli verkur að um fjórðungur kvenna á vinnumarkaði, þeirra sem eru í vinnu, sagðist búa við slæma andlega heilsu.“