ASÍ ung var með viðburð og kynningu á Akureyri og bað ég varaformann ASÍ ung að senda mér fréttatilkynningu sem er hér.

Á föstudaginn átti stjórn ASÍ-UNG góðan dag á Akureyri þar sem við sameinuðum fræðslu, tengslamyndun og skemmtilega samveru.
Við byrjuðum daginn í Verkmenntaskóla Akureyrar, þar sem við vorum á göngum skólans, dreifðum varningi og spjölluðum við áhugasama nemendur um ASÍ-UNG, verkalýðshreyfinguna og mikilvægi þess að ungt fólk taki þátt og láti rödd sína heyrast.
Í framhaldinu héldum við kynningu á starfsemi ASÍ-UNG fyrir starfsfólk og stjórnarfólk stéttarfélaga innan ASÍ á Múlabergi. Þar kynntum við starfsemi okkar, ræddum um mikilvægi þess að virkja ungt fólk innan verkalýðshreyfingarinnar og hvernig stéttarfélög geta stutt við öflugt ungliðastarf. Að kynningunni lokinni var boðið upp á léttar veitingar og gafst gott tækifæri til að spjalla, kynnast og ræða áframhaldandi samstarf.
Um kvöldið lauk deginum svo með bjórkvöldi og pubquiz, þar sem um 20 manns mættu og tóku þátt. Þar var góð stemning, mikið hlegið og frábært tækifæri fyrir ungt fólk úr ólíkum stéttarfélögum til að hittast í afslappaðra umhverfi.
Við erum mjög ánægð með hvernig dagurinn tókst í heild sinni. Viðburðirnir voru gott skref í að efla tengsl ASÍ-UNG við ungt fólk, stéttarfélög og starfsfólk þeirra á Akureyri og styrkja tengslanet ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar.
Við erum spennt fyrir framhaldinu, vonumst til þess að geta haldið áfram að vera sýnileg og virk á Akureyri og hlökkum til frekara samstarfs.
 

Bestu kveðjur,

Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir

Varaformaður Einingar-Iðju

460-3605