Ályktanir sambandsstjórnar Samiðnar

Á fundi sambandsstjórnar sem haldinn var í Hannesarholti (og í fjarfundi) voru samþykktar tvær ályktanir sem lúta annars vegar að hvatningu til stjórnvalda að ganga lengra til stuðnings þeim sem misst hafa vinnu og lent í fjárhagserfiðleikum, og hins vegar góðum árangri átaksins "Allir vinna" og mikilvægu innleggi átaksins til efnahagslegrar viðspyrnu.  Mikilvægt er að átakinu verði fram haldið og sveitarfélögin komi að málum með auknum fjárfestingum. 

Ályktun um stuðning vegna efnahagssamdráttar
"Það eru jákvæð teikn á lofti í íslensku samfélagi með komu bóluefnis til landsins. Aukin bjartsýni er að íslenskt efnahagslíf nái auknum þunga á seinni hluta ársins 2021. Íslensk stjórnvöld hafa gripið til margvíslegra aðgerða til að styðja íslenskt atvinnulíf sem ber að fagna. Hins vegar er ljóst að ekki hefur verið gengið nógu langt fyrir þá sem hafa orðið fyrir atvinnumissi og í fjárhagslegum erfiðleikum og mikilvægt að þar kom til frekari stuðnings. Samiðn hvetur íslensk stjórnvöld að halda betur utan um þá sem hafa orðið fyrir áföllum á þessum erfiðum tímum."

Ályktun um átakið "Allir vinna"  
"Samiðn fagnar þeim árangri sem náðst hefur í átakinu “Allir vinna” en á síðasta ári námu endurgreiðslur vegna þess tæpum 20 m.a. kr. Ljóst er að þetta hefur verið mikilsver innleg í þeim árangri sem íslenskt samfélag hefur þó náð í afar erfiðu og krefjandi árferði. Samiðn vill hvetja íslensk stjórnvöld að framlengja átakið enda fara þar saman hagsmunir allra.
Samiðn telur milvægt að sveitarfélög auki við fjárfestingar sínar. Þegar tölulegar staðreyndir eru skoðaðar kemur í ljós að þau hafi því miður ekki staðið við stóru orðin í Covid faraldursins."