Félag málmiðnaðarmanna
Akureyri er stofnað á Akureyri 23. febrúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir
hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur.
Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.
Félagið er málssvari fyrir alla málmiðnaðarmenn á félagssvæðinu og vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, svo
sem með því að semja um kaup og kjör, bættan aðbúnað við vinnu og gæta þess að ekki sé gengið á rétt
þeirra.
Þá vinnur félagið að ýmsum öðrum málum til að veita félagsmönnum sem víðtækasta þjónustu eins og
að bjóða upp á orlofsshús eða íbúðir á hagstæðum kjörum, veita styrki til endurmenntunar sem sífellt er að aukast
í nútíma þjóðfélagi.

Félagið hefur opna skrifstofu virka dag frá kl. 09:00 til 16:00 Hákon Hákonarson er formaður félagsins og jafnframt starfsmaður.
Hægt er að semja um afgreiðslu utan þessa hefðbundna skrifstofutíma.
Stjórn félagsins skipa í dag:
Hákon Hákonarson - formaður
Jóhann R. Sigurðsson - varaformaður
Finnbogi Jónsson - ritari
Eyþór Jónsson - gjaldkeri
Arnþór Örlygssson - meðstjórnandi
Brynjólfur Jónsson - meðstjórnandi
Jóhann Valberg Jónsson - meðstjórnandi
Stjórn FMA 2011 - 2012






