Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Reglugerðir orlofssjóðs

1. gr.
Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri.

2. gr.
Tilgangur sjóðsins er að koma upp og reka orlofsheimili fyrir félagsmenn Félags málmiðnaðarmanna Akureyri og fjölskyldur fleirra, svo og þá nema í málmiðnaði sem greitt er af til orlofssjóðs félagsins og auðvelda þeim á annan hátt að njóta orlofsdvalar.

3. gr.
Stjórn félagsins ber ábyrgð á sjóðnum og sér um að ávaxta hann eins og hagkvæmast er á hverjum tíma. Endurskoðun reikninga sjóðsins annast endurskoðendur félagsins og skal leggja endurskoðaða reikninga sjóðsins fyrir aðalfund.

4. gr.
Tekjur sjóðsins eru:

a) Samningsbundnar greiðslur atvinnurekenda til sjóðsins.

b) Vaxtatekjur.

5. gr.
Heimilt er að verja allt að 15% af tekjum sjóðsins til reksturs hans.

6. gr.
Reglugerð þessari má aðeins breyta á lögmætum aðalfundi félagsins. þó er breyting reglugerðarinnar því aðeins gild að hún sé saþykkt af 2/3 greiddra atkvæða.

Mynd augnabliksins

mynd256.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 6375

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn