Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Reglugerð styrktarsjóðs

1.gr.
Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Félags málmiðnaðarmanna Akureyri.

2.gr.
Tilgangur sjóðsins er:

a) Að styrkja félagsmenn Félags málmiðnaðarmanna Akureyri t.d. í verkföllum og verkbönnum eftir því sem hagur sjóðsins er á hverjum tíma.
b) Að styrkja félagsmenn sem hafa búið við langvarandi atvinnuleysi og njóta ekki atvinnuleysisbóta. Greiða skal 60 % af dagvinnu viðkomandi í allt að 2 vikur á hverju tímabili (á ári).  Greiðslur samkvæmt b-lið geta numið allt að 50% af vaxtatekjum sjóðsins á ári.
c) Að styrkja félagsmana  til tölvunáms, tungumálanáms, meistaranáms, meiraprófs bílstjóra, þungavinnuvélaprófs og annarra námskeiða sem eflir þá sem málmiðnaðarmenn.  Upptalning þessi er ekki tæmandi heldur leiðbeinandi.                                                                                                       Stjórn félagsins  sem er jafnframt stjórn sjóðsins, getur tekið til umfjöllunar og afgreiðslu óskir félagsmann um frekari styrkveitingar en að framan greinir.  Samþykki stjórnin slíka beiðni ákveður hún einnig styrkupphæðina, enda geri hún rökstudda grein fyrir ákvörðun sinni á næsta aðalfundi félagsins.                                                                                               
d)  Námskeið sem styrkt eru af sjóðnum skulu efla félagsmennina sem málmiðnaðarmenn.
e) Greiða kennslukostnað þ.m.t. rekstur eigin húsnæðis í Draupnisgötu og/eða leigu á öðru húsnæði.
f) Heimilt er stjórn sjóðsins að kaupa og selja húsnæði eftir því sem þurfa þykir.

3.gr.
Tekjur sjóðsins eru.
a) Vaxtatekjur.
b)  Aðrar tekjur samkvæmt ákvörðun aðalfundar.

4. gr.
Rétt til styrkja hafa allir löglegir félagsmenn. Ennfremur má með samþykki lögmæts félagsfundar veita styrk til einstakra stéttarfélaga ef þau eru í verkfalli eða verkbanni og þörf virðist á að hjálpa þeim.

5. gr.
Nú stendur yfir verkfall eða verkbann , skal stjórnin þá koma sér saman um hve háar greiðslur úr sjóðnum skulu vera í hverju tilviki og hvenær þær skulu hefjast. Þá tillögu skal stjórnin leggja fyrir félagsfund við fyrstu hentugleika. Sé tillagan samþykkt á löglegum félagsfundi geta greiðslur hafist.

6. gr.
Félagsstjórnin ber ábyrgð á sjóðnum og skal sjá um að hann sé ávaxtaður eins og hagkvæmast er á hverjum tíma. Stjórn sjóðsins ákvarðar allar greiðslur.

7. gr.
Reglugerð þessari má aðeins breyta á löglegum aðalfundi félagsins. Reglugerðarbreytingin er því aðeins gild að hún sé samþykkt af  2/3 greiddra atkvæða. 


Þannig samþykkt á aðalfundi félagsins  23. febrúar 2008

Mynd augnabliksins

fma_adalfundur_2012_067__1600x1200_.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7107

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn