|
Akureyrarbær hefur í samstarfi við ýmsa aðila í bæjarfélaginu tekið saman samræmdar upplýsingar inn á sérstakt Ráðgjafartorg, vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í efnahagslífi þjóðarinnar. Markmiðið er að samræma og auðvelda aðgang að þjónustu og ráðgjöf á vegum Akureyrarbæjar og samstarfsaðila. Ráðgjafartorgið er samstarfsverkefni fjölmargra aðila sem myndað hafa Almannaheillanefnd í bæjarfélaginu. Þetta eru Akureyrarbær, Heilsugæslustöðin, Rauði krossinn, kirkjurnar, verkalýðsfélögin, framhaldsskólarnir, Háskólinn á Akureyri, Vinnumálastofnun og Sjúkrahúsið á Akureyri. Á Ráðgjafartorginu eru teknar saman ýmsar upplýsingar sem gagnast geta þeim sem telja sig þurfa aðstoð vegna þeirra erfiðleika sem þjóðin glímir nú við. Þar eru hlekkir inn á ýmsar síður á vegum fjölda stofnana í þjóðfélaginu þar sem finna má svör við mörgum þeirra spurninga sem kvikna við þær aðstæður sem nú eru uppi. Þá eru hér upplýsingar um hvert leita megi ef þörf er á aðstoð eða ráðgjöf. |
Flýtilyklar
Ráðgjafartorg Akureyrar
Leita
Póstlistar
Teljari
Í dag: 4
Samtals: 6375
Samtals: 6375
Klukkan
Veður og færð
Akureyri
VNV 1 m/s
1 °C
Reykjavík
A 10 m/s
2 °C
Egilsstaðir
A 7 m/s
2 °C
Ísafjörður
SSV 1 m/s
-2 °C
Færð á vegum
Skoða veðurkort






