Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Ráðgjafar í starfsendurhæfingu

Á Eyjafjarðarsvæðinu starfa fjórir ráðgjafar hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði, þau Anna Guðný, Elsa, Nicole og Bjarki Þór. Þau eru starfmenn Einingar-Iðju, en starfa fyrir öll stéttarfélög á svæðinu, og eru með aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu á Akureyri. Elsa er með netfangið elsa@ein.is, Nicole er með netfangið nicki@ein.is, Anna er með netfangið anna@ein.is og Bjarki Þór er með netfangið bjarki@ein.is. Hægt er að ná í þau í síma 460 3600.  


Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

Hlutverk ráðgjafa er að veita einstaklingum aðstoð við að viðhalda og efla virkni til vinnu. Hann býður öllum félagsmönnum sem sækja um dagpeningagreiðslur hjá sjúkrasjóði upp á þjónustu og aðstoð, einnig þeim félagsmönnum sem geta ekki eða eiga erfitt með að sinna störfum sínum eins og er vegna heilsufars. Það geta verið einstaklingar sem eru í veikindaleyfi eða jafnvel ennþá í starfi.

Stuðningurinn tekur mið af þörfum, væntingum og getu hvers og eins og felst í.....

Ráðgjöf og hvatningu sem tekur mið af aðstæðum einstaklings
Mat á starfshæfni sem tekur mið af bæði heilsufarslegum og félagslegum þáttum.
Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinnar áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og endurhæfingu.
Aðstoð og leiðbeiningum til að tryggt sé að viðkomandi einstaklingur fái það sem honum ber innan kerfisins.
Aðstoð frá sérfræðingum eftir mat á stöðu einstaklings hverju sinni. Hér getur t.d. verið um að ræða aðstoð lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
Aðstoð í formi stuðnings til náms sem hefur það að markmiði að auka vinnugetu einstaklings.
Aðstoð í formi skipulagðrar starfsendurhæfingar þar sem einstaklingurinn, atvinnurekandinn og mismunandi fagaðilar vinna saman við að finna leiðir til aukinnar vinnugetu.

Sjá nánar um Starfsendurhæfingu á vef VIRK www.virk.is

 

Mynd augnabliksins

1da725df9d27d499531b1ea26de8bad7.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7107

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn