Frá
1. mars 2009 hefur Elsa Sigmundsdóttir starfað í 100% starfi sem ráðgjafi hjá sjúkrasjóðum ASÍ stéttarfélaga í
Eyjafirði, þau eru Eining-Iðja, Fagfélagið, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólk Akureyri og
nágrenni, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Rafvirkjafélag Norðurlands, Sjómannafélag Eyjafjarðar og Sjómannafélag
Ólafsfjarðar. Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaganna og Virk, Starfsendurhæfingarsjóðs.
Þann
1. nóvember 2009 bættust opinberu félögin við sem greiðendur í sjóðinn og þá hóf Nicole Kristjánsson störf sem
ráðgjafi. Opinberu félögin eru: Kjölur/BSRB, BHM og KÍ.
|
|
|
|
|
Elsa |
Nicole |
Anna |
Elsa, Nicole og Anna eru starfmenn Einingar-Iðju og eru með aðsetur á skrifstofu félagsins á 2. hæð í Alþýðuhúsinu
á Akureyri. Elsa er með netfangið elsa@ein.is, Nicole er með netfangið nicki@ein.is og Anna er með netfangið anna@ein.is. Hægt er að ná í þær í síma 460 3600
Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar
örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.
Hlutverk ráðgjafa er að veita
einstaklingum aðstoð við að viðhalda og efla virkni til vinnu. Hann býður öllum félagsmönnum sem sækja um dagpeningagreiðslur hjá
sjúkrasjóði upp á þjónustu og aðstoð, einnig þeim félagsmönnum sem geta ekki eða eiga erfitt með að sinna störfum
sínum eins og er vegna heilsufars. Það geta verið einstaklingar sem eru í veikindaleyfi eða jafnvel ennþá í starfi.
Stuðningurinn tekur mið af
þörfum, væntingum og getu hvers og eins og felst í.....
Ráðgjöf og hvatningu sem tekur mið af aðstæðum einstaklings
Mat á starfshæfni sem tekur mið af bæði heilsufarslegum og félagslegum þáttum.
Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinnar áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu og endurhæfingu.
Aðstoð og leiðbeiningum til að tryggt sé að viðkomandi einstaklingur fái það sem honum ber innan kerfisins.
Aðstoð frá sérfræðingum eftir mat á stöðu einstaklings hverju sinni. Hér getur t.d. verið um að ræða aðstoð lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
Aðstoð í formi stuðnings til náms sem hefur það að markmiði að auka vinnugetu einstaklings.
Aðstoð í formi skipulagðrar starfsendurhæfingar þar sem einstaklingurinn, atvinnurekandinn og mismunandi fagaðilar vinna saman við að finna leiðir til aukinnar vinnugetu.
Sjá nánar um Starfsendurhæfingu á vef VIRK www.virk.is









