Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Orlofsmál

Orlofsmál er mikilvægur þáttur í starfssemi FMA. Félagsmenn eru hvattir til að fylgjast vel með og kynna sér þá þjónustu sem félagið veitir eins og í útleigu á íbúðum í Reykjavík, Ljósheimum 10 og  orlofshúsum, Illugastöðum, Því miður erum við ekki með hús í Ölfusborgum eða Miðdal í sumar en unnið er að því að fá til útleigu fyrir félagsmenn sumarhús á suðurlandi t.d. Laugarvatni. Tilkynnig um málið væntanleg á heimasíðuna fljótlega. 
Til viðbótar þessu þá minnum við á orlofsstyrkina sívinsælu sem félagið greiðir sínum félagsmönnum og við viljum hvetja félagsmenn til að skoða alla þá möguleika sem bjóðast nú með gistimöguleika vítt og breitt um landið ef menn eru nógu tímanleg í að skipuleggja orlofið.
Þá selur félagið gistimiða á Edduhótelin á landin en það er góður kostur og ekki svo mjög kostnaðarsamur sjá  http://www.hoteledda.is/  Einnig verða til sölu á góðu verði til félagsmanna svokölluð útilegukort sjá utilegukort@utilegukort.is, og veiðikort sjá http://www.veidikort.is/

ORLOFSUPPBÓT  er kr. 25.800  á orlofsárinu sem hefst 1. maí 2010 miðað við fullt starfsár.
Rétt að minn á í leiðinni að  mikilvægt að félagsmenn fylgist með orlofsrétti, orlofsuppbót, veikindum  í orlofi og fæðingarorlofi. Allar upplýsingar er að fá á skrifstofu félagsins Skipagötu 14 eða í síma 462 6800 og í kjarasamningi Samiðnar, sjá kjarasamningar hér á heimasíðunni.


Orlofsíbúðir og hús.

 


 

  Ljósheimar 10:
Sækja um dvöl  
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri á eina íbúð í Reykjavík, og að auki aðra íbúð í sama húsi að hálfu á móti Félagi bókagerðarmanna.  Íbúðirnar eru í Ljósheimum 10,  á fjórðu og fimmtu hæð. Íbúðirnar er fjögurra herbergja c.a. 98 m2 með svefnplássi fyrir sex manns.

Íbúðirnar eru búnar  öllum númtíma þægindum og mjög snyrtilegar. Þvottavél og þurkari er í þvottahúsum sem er í íbúðunum og einnig er aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi í kjallara.

Íbúðirnar þarf að þrífa daglega og sérstaklega vel við brottför. Að öðru leyti vísast til umgengnisreglna í leigusamningi og húsreglur sem hanga uppi í lyftu hússins.
Séu félagsmenn með einhverjar aðrar óskir um brottför og komutíma þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna í síma 4626800.


Skiptidagar: 
Húsin leigjast í eina viku í senn. Afhending hússins til komugesta er kl. 16:00 á miðvikudögum, en dvalargestir þurfa að afhenda húsið kl. 12:00 á skiptidögum.

Lyklar: 
Afhendast á skrifstofu félagsins

Helstu upplýsingar um aðstöðu í húsunum:

Rúmstæði 6 Borðbúnaður 8-12 Heitur Pottur Nei
Sængur 6 Sjónvarp

Koddar 6 Video og DVD

Barnarúm Útvarp

Barnastóll Gasgrill


Það sem fólk þarf sérstaklega að taka með sér er: 
Lín í rúm, diskaþurrkur og handklæði.



 Illugastaðir:
Sækja um dvöl

Félagið á orlofshús nr. 30 á Illugastöðum, og 32.5% í húsi nr. 13 á móti Félagi- iðn og tæknigreina. Nýtt hús nr. 13 verður tekið í notkun í sumar. Hús nr. 30 var byggt árið 2002 og er mjög vel búið og allt hið glæsilegasta. Illugastaðir eru í Fnjóskadal, tæplega fimmtíu km. austan Akureyrar. Svæðið á Illugastöðum er mjög notalegt og fjölskylduvænt. Á svæðinu eru miklir afþreyingamöguleikar eins og sundlaug, gufubað, og heitir pottar við hvert hús. Einnig er mini-golfvöllur, knattspyrnuvöllur, leiktæki fyrir börn og skemmtilegar gönguleiðir. Í húsunum eru flest nútíma þægindi.

Skiptidagar: 
Húsin leigjast í eina viku í senn. Afhending hússins til komugesta er kl. 17-21:00 á föstudögum, en dvalargestir þurfa að afhenda húsið kl. 15:00 á skiptidögum.

Lyklar: 
Afhendast hjá umsjónarmanni. 
Helstu upplýsingar um aðstöðu í húsunum:

Rúmstæði 6 Borðbúnaður 8-12 Heitur Pottur
Sængur 6 Sjónvarp

Koddar 6 Video og DVD

Barnarúm Útvarp

Barnastóll Gasgrill


Það sem fólk þarf sérstaklega að taka með sér er: 
Lín í rúm, diskaþurrkur og handklæði.



 Laugarvatn:
Sækja um dvöl

  



 

SAMNINGUR VIÐ FOSSHÓTEL

Búið er að endurnýja samning sem Félag málmiðnaðarmanna gerði um hagstæða gistingu hjá Fosshótelum. Fosshótel eru staðsett víða um land og hér fyrir neðan má sjá samningsverð á gistingu fyrir félagsmenn í Félagi málmiðnaðarmanna.

FOSSHÓTEL
1. jan. 2010 - 14. maí 2010 og 15. september 2010 – 31. desember 2010
Verð á herbergi (eins manns eða tveggja manna) á nótt með morgunmat: kr. 9.000,-

15. maí – 14. september 2010 25% afsl. af almennu listaverði

Garður gistihús
1. jan. 2010 - 14. maí 2010 og 15. september 2010 – 31. desember 2010
Verð á herbergi (eins manns eða tveggja manna) á nótt með morgunmat: kr. 6.500.-

15. maí – 14. september 2010 10% afsl. af almennu listaverði

Verð miðast við staðgreiðslu. Ef reikningur skal sendur til greiðslu skal semja um það fyrirfram.

Afpöntunarreglur: Einstaklingar geta afbókað í síðasta lagi 2 sólarhringum fyrir komu án þess að greiða fyrir herbergið. Ef afbókað er seinna greiðist 100% afbókunargjald.
Afbókunarfyrirvari vegna hópa er 30 dagar, ef hópurinn er afbókaður 0-30 dögum fyrir komu greiðist 100% afbókunargjald.


Bókanir: allar bókanir fyrir öll Fosshótel skulu berast til söluskrifstofu Fosshótela (Sími: 562 4000/ Fax: 562 4001/ netfang: bokun@fosshotel.is)


Nánar má lesa um hvert hótel fyrir sig hér fyrir neðan

Fosshótel Baron
Barónsstígur 2-4 (við Skúlagötu), 101 Reykjavík
Sími: 562 3204, Fax 552 4425
Opið allt árið
Fosshótel Baron er 3ja stjörnu hótel sem er staðsett í hjarta Reykjavíkur, aðeins örfáum skrefum frá Laugaveginum og hinum skemmtilega göngustíg sem liggur meðfram sjónum.
Samtals eru 121 herbergi, studio og íbúðir, öll með sturtu/WC, síma, sjónvarpi og þráðlausri internettengingu. Á Fosshóteli Baron er morgunverðarsalur, lyfta, internetaðgangur í móttöku og frítt bílastæði.

**********

Fosshótel Lind
Rauðarárstígur 18, 105 Reykjavík
Sími 562 3350 , Fax 562 3351
Opið allt árið

Fosshótel Lind er notalegt þriggja stjörnu ferðamannahótel. Staðsetning hótelsins er afbragð en það er nálægt Hlemmi og Laugavegi.
Það eru 55 eins og tveggja manna herbergi sem eru með sturtu/WC, flatskjáasjónvarpi með innbyggðum DVD spilara, útvarpi og síma. Öryggishólf eru í sumum herbergjunum, en einnig í móttöku. Í boði er þráðlausa internettengingu.

**********

Fosshótel Suðurgata
Suðurgata 121, 101 Reykjavík
Sími 562 4018, Fax (+354) 562 4001
Opið: Júní – Ágúst
Fosshótel Suðurgata er þægilegt 2ja stjörnu hótel. Það er staðsett á frábærum stað nálægt miðbænum, Reykjavíkurflugvelli, Þjóðminjasafninu og Háskóla Íslands. Margar skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir eru í nágrenninu; meðfram sjónum, í Öskjuhlíðina, upp í Perlu og í Nauthólsvíkina svo eitthvað sé nefnt. Hótelið býður upp á einfalda, praktíska gistingu með 42 stórum herbergjum (28-30m ² ). Öll herbergin eru með sjónvarpi og svölum eða verönd. Hótelið og staðsetning þess eru mjög fjölskylduvæn.

**********

Fosshótel Reykholt
320 Reykholt í Borgarfirði
Sími 435 1260, Fax 435 1206
Opið allt árið

Fosshótel Reykholt er menningartengt 3ja stjörnu ferðamannahótel sem byggir á þríþættu þema: norrænni goðafræði, íslenskum bókmenntum og klassískri tónlist.
Eftirfarandi tegundir herbergja eru í boði í Reykholti:
24 stór "Wellness" herbergi með baðkari.
29 herbergi með sturtu, eins manns og tveggja manna.
Fjölskylduherbergi.
Brúðarsvíta Freyju.

**********

Fosshótel Húsavík
Ketilsbraut 22, 640 Húsavík
Sími 464 1220, Fax 464 2161
Moby Dick Pub: Sími 464 1003
Opið allt árið.
Fosshótel Húsavík er vinalegt og vel búið, notalegt 3ja stjörnu ferðamannahótel. Hótelið er í hjarta Húsavíkur og í göngufæri við höfnina.
Á hótelinu eru 70 herbergi með eftirfarandi tegundum herbergja:
34 herbergi með tveimur einstaklingsrúmum eða einu hjónarúmi.
10 herbergi með sjávarsýn.
26 úrvals herbergi með “king size" rúmum.
Á hótelinu er rekinn veitingastaður og bar. Einnig er móttakan opin allan sólarhringinn og við hana er hægt að fá aðgang að interneti. Í húsinu eru sérhönnuð herbergi fyrir fatlaða og einnig er lyfta.

**********

Fosshótel Dalvík
Skíðabraut 18, 620 Dalvík
Sími 466 3395, Fax 466 3396
Opið allt árið.
Fosshótel Dalvík er nýtt og þægilegt ferðamannahótel á góðum stað á Dalvík í Eyjafirði. Á hótelinu eru 25 herbergi með sturtu/salerni, sjónvarpi, síma, þráðlausri internet tengingu og útsýni yfir nálæg fjöll og firði. Auk þess býður hótelið upp á 7 herbergi með sameiginlegri sturtu- og/salernis aðstöðu auk sameiginlegs eldhúss sem að kemur sér vel fyrir svefnpokagistingar og þá sem vilja ferðast ódýrt.

**********

Fosshótel Laugar
650 Laugar
Sími 464 6300, Fax 562 4001
Opið: Júní – Ágúst

Fosshótel Laugar er notalegt 2/3 stjörnu ferðamannahótel, opið á sumrin. Á veturna er hluti hótelsins nýtt undir heimavist Framhaldsskólans á Laugum.
Herbergi án baðs og svefnpokapláss eru látlaus en herbergi með baði eru frekar rúmgóð.
Þar eru 50 herbergi með baði og síma, 22 herbergi án baðs og svefnpokapláss. Einnig er á hótelinu veitingastaður, bar, tveir morgunverðarsalir og innisundlaug.

**********


Fosshótel Vatnajökull
781 Hornafjörður
Sími 478 2555, Fax 562 4001
Opið: Maí – September
Fosshótel Vatnajökull er vinsælt og notalegt ferðamannahótel. Þar er að finna sjónvarpsstofu, bar og veitingastað með útsýni yfir jökulinn þar sem gott er að slaka á eftir ævintýri dagsins.
Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.
Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Vatnajökli:
26 herbergi með baði, sjónvarpi og síma.
Herbergi með jökla-útsýni.

**********

Fosshótel Skaftafell
Freysnesi - 785 Öræfi
Sími: 478 1945, Fax : 478 1846
Opið Mars – Október
Fosshótel Skaftafell er huggulegt þriggja stjörnu ferðamannahótel á einum af fallegustu stöðum Íslands.
Fosshótel Skaftafell er umvafið jöklum með töfrandi útsýni yfir Hvannadalshnjúk, hæsta tind Íslands. Náttúran og landslagið umhverfis hótelið er stórbrotið og einstakt. Hótelið sem er við hringveginn, er í um 330 km frá Reykjavík, er mikil paradís fyrir náttúruunnendur.
Eftirfarandi tegundir gistingar eru í boði á Fosshóteli Skaftafelli:
63 einföld en góð hótelherbergi með sturtu/salerni, gervihnattasjónvarpi, síma og þráðlausri internettengingu.
Öll herbergin eru á jarðhæð í fjórum mismunandi byggingum með stórkostlegu jöklaútsýni.

**********

Fosshótel Mosfell
Þrúðvangur 6, 850 Hella
Sími: 487 5828, Fax: 562 4001
Opið Júní – Ágúst

Fosshótel Mosfell er 2/3 stjörnu ferðamannahótel með 35 herbergi með baði og 18 herbergi án baðs. Einnig er þar, morgunverðarsalur, setu- og sjónvarpsstofa, aðgangur að interneti og ráðstefnusalur sem hentar mjög vel fyrir minni fundi, fyrirlestra og myndbandssýningar. Öll herbergi, barir og veitingastaðir eru reyklaus svæði.

**********

Garður gistihús
Við Hringbraut
101 Reykjavík
Sími: 562-4000 / 511-5900
Fax: 562-4001
Opið Júní – Ágúst

Garður gistihús hefur verið uppáhald margra ferðalanga í fjölda ára vegna góðrar staðsetningar og sanngjarns verðs. Gistihúsið liggur vel staðsett á rólegum stað nálægt miðbæ Reykjavíkur. Í göngufæri eru meðal annars allar helstu almennings samgöngur,verslanir, skemmtistaðir, kaffihús og veitingastaðir ásamt Þjóðminjasafni Íslands.

Þá er gisting á EDDU-Hótelunum sjá    http://www.hoteledda.is/   góður valkostur og niðurgreiddur af félagin til sinna félagsmanna. Nánari upplýsingar hjá félaginu í síma 4626800. 

 

Mynd augnabliksins

64c471f8945be591613a293ca3586dc0.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 6375

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn