Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Fréttir frá fyrirtækjum

Hér geta fyrirtæki sent inn fréttaefni á netfangið fma@fma.is

20. desember 2011

Hamar ehf. 

Hamar er þekkingarfyrirtæki í málmiðnaði og státar af einu öflugasta þjónustuneti allra vélsmiðja á Íslandi. 

Sagan 

Fyrirtækið Hamar var stofnað í Kópavogi árið 1998. Fyrst var verkstæðið í 100 fermetra leiguhúsnæði í Kópavogi, og voru vélar og búnaður mjög fátækleg til að byrja með. Grunngildin voru strax sett upp á þann veg að það væri ekki spurning um tækin og tólin heldur mennina sem unnu á búnaðnum, og að aðhald og sparnaður væri í rekstri. Allur sá búnaður sem þurfti til var keyptur nýr eða með kaupum á öðrum vélsmiðjum. Þessari stefnu hefur verið fylgt allt frá stofnun. Jafnt og þétt stækkaði og dafnaði fyrirtækið og í dag er það með rekstur á fimm stöðum á landinu, veitir úrvals þjónustu með topp mannskap og státar af fyrsta flokks vélbúnaði, húsnæði og aðstöðu, og starfar í öllu sem kemur að véltækniiðnaði. 


Eitt af mikilvægustu atriðum í rekstri Hamars er að fyrirtækið gerir miklar kröfur til starfsmanna, ætlast til þess að starfsmenn geri líka kröfur til Hamars og bíður einnig starfsmönnum að vaxa með fyrirtækinu. Í dag eru flestir stjórnendur menn sem byrjuðu störf sem aðstoðarmenn eða nemar. Verkefnin eru mest í sjávarútvegi t.d fiskimjölsverksmiðjum og frystihúsum, íslenski fiskiskipaflotinn er mjög mikilvægur hlekkur ásamt stóriðju. 

Markmiðin 

Markmið Hamars er að stuðla að því að viðskiptavinir fái allarf bestu lausnirnar til hagræðingar hjá sér með markvissri vöruþróun, góðum mannskap, tækjabúnaði og úrvals efnum á öllum verkstæðum fyrirtækisins. Mikið hefur verið unnið í gæða-, aðbúnaðar- og öryggismálum Hamars og hefur Hamar hlotið fjölda viðurkenninga fyrir aðbúnað starfsmanna og störf í öryggismálum og er slagorðið „ heil heim“ lykillinn að góðum undirbúningi verka og öflugu gæðaeftirliti. 


Hamar er með starfstöðvar í Kópavogi, Akureyri, Grundartanga, Þórshöfn og Eskifirði og nýjasta starfstöðin er klár í Sandgerði komi til framkvæmda í Helguvík. 

Alltaf sól á Akureyri 

Á Akureyri er rekin öflug starfstöð, þrátt fyrir að vera ekki með flesta fermetra af verkstæðum Hamars er ljóst að það er eitt öflugasta verkstæðið í samstæðunni. Þar eru mjög hæfir starfsmenn, sem hafa verið mjög eftirsóttir í verkefni um allt Ísland og víðar þar sem starfsmenn frá Akureyri hafa verið á ferðalögum um allan heim og má þar nefna Grænland, Kanaríeyjar, Vestur Sahara, Marokkó, Noreg og Angóla. 


Það virðist litlu máli skipta um hvað Akureyringarnir eru beðnir um að græja, þá eru þeir alltaf langbestir og flottastir, ef ekki af annarra sögn þá alltaf af eigin sögn. Svo ekki sé talað um veðrið á Akureyri þar sem alltaf er sól „ef ekki fyrir neðan skýin þá fyrir ofan.“ Þetta hugarfar og þessi skemmtilegi vígahugur sem einkennir Hamar á Akureyri hefur gert smiðjuna að fyrirmynd annarra sem nær langt út fyrir rekstur Hamars. 

Smiðjan er mjög vel búin verkfærum og er skipt upp í tvö verkstæði þar sem annað er algerlega útbúið fyrir ryðfría smíði en hitt fyrir smíði úr stáli og vélaviðgerðir. Á þessu ári eignaðist Hamar húsnæði sitt við Gránufélagsgötuna og mikill hugur er í mönnum að endurbæta og gera verkstæðið enn öflugra. 


Mynd augnabliksins

64c471f8945be591613a293ca3586dc0.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 6375

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn