Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Fréttir

Vertu virkur neytandi

Neytendasamtökin og stéttarfélögin á Akureyri og nágrenni standa fyrir námskeiði í heimilisbókhaldi og réttindum neytenda fyrir félagsmenn sína þriðjudaginn 31. janúar. 

Námskeiðið er haldið í Alþýðuhúsinu Skipagötu 14, 3. hæð frá kl. 19:30 – 21:30. Leiðbeinandi er Brynhildur Pétursdóttir, starfsmaður Neytendasamtakanna á Akureyri. Skráningu skal tilkynna á netfangið brynhildur@ns.is  
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu!

Neytendasamtökin, Eining-Iðja, Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Kjölur stéttarfélag, Sjómannfélag Eyjafjarðar og Fagfélagið.



Mynd augnabliksins

3f086a0c88447803b695bab5b823a138.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 4
Samtals: 6375

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn