Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Fréttir

Mikil reiði á formannafundi ASÍ

Á heimasíðu ASÍ segir að gríðarleg gremja í garð ríkisstjórnarinnar kom fram á formannafundi ASÍ í dag þegar ræddar voru forsendur kjarasamninganna. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði í upphafi fundar að það væri makalaus staða að það væri ríkisstjórnin sem skuli vera sá aðili sem ógnar þeirri sátt sem náðst hefur á vinnumarkaði. Á fundinum kom hver formaðurinn á fætur öðrum í ræðustól og lýsti óánægju sinni með framgöngu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.

Ljóst er að ríkisstjórnin hefur ekki staðið við mörg af þeim ákvæðum sem hún skrifaði undir í tengslum við kjarasamningana 5. maí og af þeim svikum stafar reiði verkalýðshreyfingarinnar.

Samninganefnd ASÍ mun funda í fyrramálið en umboð til að segja upp eða framlengja samningum er hjá henni. Endurskoðun samninganna á að ljúka fyrir klukkan fjögur á morgun.

Forsendur gagnvart atvinnurekendum ganga eftir

Á mbl.is segir að landssambönd og félög hafa að undanförnu fengið umboð frá félögunum áður en ákvörðun er tekin varðandi endurskoðun kjarasamninganna. Gylfi segir í samtali við mbl.is að markmið þessa fundar hafi verið að fá upplýsingar frá félögunum og bera saman bækur um næstu skref.

„Nokkur félög vilja segja samningunum upp en yfirgnæfandi meirihluti okkar aðildarfélaga vill halda þessu áfram. Forsendur okkar gagnvart atvinnurekendum eru að ganga eftir og ekki tilefni viðbragða gagnvart þeim, en að sama skapi er alveg grenjandi óánægja með aðkomu ríkisstjórnarinnar og vanefndir hennar,“ segir Gylfi.

Á formannafundinum í dag rifjaði hann upp að mikil umræða fór fram á vettvangi ASÍ haustið 2010 og samtökin beittu sér fyrir því að reynt yrði að ná breiðri sátt á milli vinnumarkaðarins og stjórnmálanna um leiðir út úr kreppunni. „Ég held að niðurstaða samninganna á síðasta ári hafi undirstrikað að það varð ofan á,“ segir Gylfi.

„Allur vinnumarkaðurinn fór þessa sömu leið, þannig að kjarasamningurinn sem ASÍ og SA gerðu í byrjun maí var grundvöllur að mjög breiðri sátt um þróun kjaramála. Það er þess vegna ömurlegt til þess að vita að stjórnvöld skuli ógna þessari sátt með framgönguleysi sínu. Maður hefði haldið að það væri happ hverrar ríkisstjórnar að eiga jákvætt samstarf við samningsaðila til að verja slíka sátt en ekki vera sá aðili sem græfi undan henni,“ segir Gylfi.

Vantrauststillaga fékkst ekki afgreidd

Tillaga Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness, á formannafundi ASÍ í dag, þar sem krafist er að ríkisstjórnin standi við gefin loforð og að öðrum kosti sjái fundurinn sig knúinn til að lýsa yfir vantrausti á ríkisstjórnina, fékkst ekki afgreidd á fundinum.

„Eftir tveggja tíma umfjöllun um þetta þá neitaði forseti Alþýðusambandsins að taka þessa tillögu til afgreiðslu og sagði að formannafundur ASÍ væri ekki ályktunarhæfur. Ég hef oft orðið vitni að lýðræðislegu ofbeldi en þarna keyrði alveg um þverbak,“ segir Vilhjálmur.

Hann segir að honum hafi þótt vænt um stuðning sem hann hafi fengið frá þónokkuð mörgum fundarmönnum og þar á meðal formanni stærsta stéttarfélagsins VR.

„Ég sagði á fundinum að mér væri algerlega óskiljanlegt af hverju ekki væri hægt að greiða þessari ályktun brautargengi en hún fékk ekki efnislega afgreiðslu sökum þessa,“ segir Vilhjálmur.

„Forystumenn í stéttarfélögum eiga ekki undir nokkrum kringumstæðum að vera eyrnamerktir einhverjum einum ákveðnum stjórnmálaflokki, heldur styðja öll góð málefni. Það er mín afstaða. En í þessu máli finnst mér einfaldlega málið líta þannig út að þarna er flokkspólitísk hollusta látin ráða för. Af hverju var hægt að lýsa vantrausti vegna vanefnda o.fl. í janúar 2009 en ekki núna þegar við höfum margítrekað verið svikin um það sem okkur hefur verið lofað? Ég vildi bara senda ríkisstjórninni skýr skilaboð. Standið við samninga, að öðrum kosti lýsir fundurinn yfir vantrausti,“ segir hann.

Viðræður við stjórnvöld

Í kvöld kom fram á mbl.is að samtöl hafi átt sér stað milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um að stjórnvöld komi til móts við þá gagnrýni að ríkisstjórnin hafi ekki staðið við fyrirheit sem hún gaf við gerð kjarasamninga. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, vonast eftir að eitthvað komi út úr þessum viðræðum.

Gylfi sagði að ASÍ hefði gagnrýnt harðlega skattlagningu á lífeyrissjóðina og það væri áköf krafa innan sambandsins um að þessu yrði breytt. Einnig legði ASÍ mikla áherslu á að ná til baka skerðingu almannatrygginga. Eins væri þrýst fast á um að farið væri út í tilraunaverkefni við atvinnuleitendur.

Erfiðasta málið er þó jöfnun lífeyrisréttinda sem ASÍ leggur mikla áherslu á. Ríkisstjórnin gaf í vor fyrirheit um að skref yrðu stigin í þá átt og Gylfi sagði við mbl.is að menn gengju að sjálfsögðu eftir efndum á því loforði.



Mynd augnabliksins

middalur__2_.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7107

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn