Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Fréttir

Kynjabókhald ASÍ og „Árið í hnotskurn

Allt frá árinu 2006 hefur ASÍ tekið saman tölur um kynjahlutfall í nefndum, stjórnum og ráðum meðal aðildarfélaga Alþýðusambandsins. Upplýsingarnar eru fengnar úr innsendum skýrslum aðildarfélaga þar sem fram kemur fjöldi félagsmanna og hlutfall kvenna og karla í stjórnum og ráðum í einstökum félögum og landssamböndum.
Hér má skoða
kynjabókhald ASÍ 2011.

Á formannafundi ASÍ sem haldinn var í gær var ritinu Árið í hnotskurn dreift. Í því er á einum stað og í stuttu og aðgengilegu máli tæpt á því helsta sem verkalýðshreyfingin hefur fengist við síðustu tólf mánuði. Hér má sjá
Árið í hnotskurn.


Mynd augnabliksins

d120310a0886fe021ea08c0abbfabd46.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7107

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn