Félag málmiðnaðarmanna á Akureyri

Félag málmiðnaðarmanna Akureyri er stofnað á Akureyri 23. janúar 1941. Félagssvæði þess er Akureyri, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit og aðrir hreppar Eyjafjarðarsýslu, einnig Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur. Félagið er aðili að Samiðn sem er aðili að Alþýðusambandi Íslands.

Fréttir

KJARAKÖNNUN

Stjórn félagsins hefur ákveðið að láta fara fram kjarakönnun meðal félagsmanna. Gögn þar að lútandi eru að berast félagsmönnum þessa dagana. Samið hefur verið við Capacent GALLUP hér á Akureyri um framkvæmdina eins og við höfum gert tvisvar áður þ.e. árin 2003 og 2005. Mjög góð reynsla er af samstarfi við þennan aðila.

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að taka starfsmönnum Capacent vel þegar þeir hringja og taka þátt í könnuninni. Það er afar þýðingarmikið að við fáum 75 til 85 % þátttöku félagsmanna þannig að niðurstöðurnar þegar þær verða ljósar sé sem allra best marktækar og gefi raunsanna mynd af því hvaða laun er verið að greiða okkar félagsmönnum um þessar mundir. Það á síðan að geta verið okkur vegvísir inn í framtíðina hvað kjörin varðar.

Góðir félagsmenn, tökum allir sem einn þátt í kjarakönnuninni

Stjórn Félags málmiðnaðarmanna Akureyri 



Mynd augnabliksins

fma_adalfundur_2012_036__1600x1200_.jpg

Póstlistar

Teljari

Í dag: 1
Samtals: 7107

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn