FUNDARBOÐ
20. janúar 2012
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri heldur félagsfund miðvikudaginn
25. janúar árið 2012. Fundurinn verður haldinn í Alþýðuhúsinu Akureyri 4. hæð Lionssalnum og hefst kl. 17.00.
FUNDAREFNI
1. Niðurstaða úr kjarakönnun sem Capacent á Akureyri vann fyrir félagið. Sigríður Ólafsdóttir hjá Capacent
gerir grein fyrir könnuninni
2. Hermann Brynjarsson hjá PWC gerir grein fyrir úttekt á greiðslugetu Sjúkrasjóðs félagsins sem hann vann fyrir félagið.
3. Gerð grein fyrir tillögum að breytingum á lögum félagsins sem stjórn félagsins hyggst leggja til á næsta aðalfundi
félagsins sem haldinn verður í næsta mánuði. Breytingarnar snúast um greiðslu félagsgjalds við 65 ára aldur og um tillögu að
lengingu kjörtímabils stjórnar, úr ein ári í tvö ár skv. lögum ASÍ, nánar á fundinum.
4. Gerð grein fyrir óskum sem borist hafa frá félagsmönnum um breytingar á greiðslum úr Styrktarsjóði félagsins þ.e.
ósk um að sjóðurinn styrki félagsmenn sem stunda nám á háskólastigi og einnig að sjóðurinn styrki félagsmenn sem stunda
nám hjá Myndlistaskólanum Akureyri t.d. í fríhendis teikningu og fjarvídd.
5. Önnur mál.
ATH!
Nú er breytingum að verða lokið á 3ju hæð Alþýðuhússins og hlutirnir í þann veginn að smella í liðinn
þar á meðal sameiginleg afgreiðsla fyrir félögin fjögur sem að þessu standa þ.e. Félag málmiðnaðarmanna Akureyri,
Félag verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Félag vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómannafélag Eyjafjarðar.
Nýtt símanúmer hefur verið tekið í notkun fyrir sameiginlega skiptiborðið þ.e. 455 1050 og nýtt beint númer til FMA er 455
1052. Gömlu númer félaganna verða þó virk a.m.k. út janúar 2012.
Nánar auglýst síðar þegar öllum breytingum er lokið og þá verður húsnæðið auglýst til
sýnis.
Stjórn Félags málmiðnaðarmanna Akureyri.






