FJÖLMENNUR FÉLAGSFUNDUR
Miðvikudaginn 25. janúar sl. var haldinn félagsfundur í Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri þar sem Sigríður Ólafsdóttir, frá Capacent Gallup á Akureyri, kynnti niðurstöður úr launa og viðhorfskönnun sem Capacent vann fyrir félagið. Þar kom margt fróðlegt fram, m.a. að meðal mánaðarlaun félagsmanna voru í nóvember sl. um kr. 406.000 mánuði , og meðaldagvinnukaup var kr. 1.803.- á tímann. Þá eru um 80% félagsmanna ánægðir eða mjög ánægðir með þjónustu félagsins skv. könnuninni og 18,6% hvorki né. Fleiri niðurstöður verða birtar hér á heimasíðunni fljótlega
Hermann Brynjarsson, hjá PWC, kynnti niðurstöðu á greiðslugetu sjúkrasjóðs félagsins sem PWC vann fyrir félagið en slíka
könnun skal skv. lögum ASÍ gera á a.m.k. fimm ár fresti. Niðurstöður könnunarinnar voru mjög ánægjulegar, sjóðurinn getur
vel staðið við allar sínar skuldbindingar skv. núgildandi reglugerð sjóðsins um ókomin ár.
52% félagsmanna eru andvígir eða mjög andvígir að FMA sameinist öðru félagi, 22% hlyntir eða mjög hlyntir, 25,2% hvorki né.
Þá kynnti stjórnir nokkrar breytingar á lögum félagsins sem hún hyggst leggja fyrir næsta aðalfund félagsins sem haldin verður í lok febrúar nk.






